Fiskistofa flytur til Akureyrar

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherrra tilkynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun að Fiskistofa yrði flutt norður á Akureyri. Er þetta í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar að flytja opinber störf út á land. Aðalbækistöð Fiskistofu er í Hafnarfirði og þar starfa um 50 manns. Starfsstöðvar eru í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, Ísafirði og Höfn í Hornafirði. Einnig hefur verið rekin […]

Gervihnattaútsendingar R�?V tryggðar

Fjármálaráðherra ætlar að sjá til þess að útsendingar R�?V um gervihnött falli ekki niður í sumar – þær séu hluti af almannaþjónustu Ríkisútvarpsins. Hann segir að tryggja verði fjármagn fyrir varanlega lausn. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að útsendingar um gervihnött myndu falla niður um mánaðamótin þar sem ekki væri fjármagn til að halda […]

Sæbjörg við bryggju í Eyjum

Sæ­björg, skóla­skip Slysa­varna­skóla sjó­manna lá við bryggju í Eyjum í gær. Skipið er á leið í slipp á Akureyri, en ferðin er notuð til að halda námskeið fyrir sjómenn á nokkrum viðkomustöðum. Í Eyjum var haldið tveggja daga endurmenntunarnámskeið og námskeið fyrir smábátasjómenn. Héðan heldur skipið til Neskaupstaðar og þaðan liggur leiðin til Akureyrar. Sæbjörg […]

Milljarðafjárfestingar á teikniborðinu

Vinnslustöðin hefur skrifað undir samninga um að smíða skip í Kína. Áætlað er heildarkostnaður verði um tveir milljarðar króna og að skipið verði tilbúið á fyrri hluta árs 2016. Fleiri fjárfestingartíðinda er að vænta frá félaginu en Guðmundur �?rn Gunnarsson stjórnarformaður sagði á aðalfundi VSV að stjórn og stjórnendur myndu stíga varlega til jarðar og […]

Stærsta Shellmót frá upphafi

Stærsta Shellmót frá upphafi hófst í morgun í Eyjum. Alls eru þátttakendur nú 1250 talsins eða um 100 fleiri en hafa áður verið, eftir því að fram kemur hjá Einari Friðþjófssyni, mótsstjóra. �??�?etta er fjölmennasta mótið. Alls koma þátttakendur frá 33 félögum og eru 104 lið í mótinu. �?að er ljóst að við getum ekki […]

Pétur Jóhann með uppistand á Háaloftinu

�?að verður mikið um að vera á Háaloftinu um helgina. Allt byrjar þetta á fimmtudagskvöldið, þegar vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar til margra ára kemur á Háaloftið með uppistand. Í raun er óþarfi að kynna Pétur Jóhann Sigfússon fyrir Eyjamönnum, en fyrir þá sem hafa verið eitthvað sunnan við sig síðustu ár, þá þarf ekki annað en […]

Stórsigur í fjörugum leik

ÍBV skellti FH þegar liðin áttust við í Pepsídeild kvenna á Hásteinsvelli í kvöld. Hávaðarok var þegar leikurinn fór fram og stóð vindurinn beint á annað markið. ÍBV byrjaði á móti vindi en var engu að síður sterkari aðilinn framan af. Shaneka Gordon kom ÍBV yfir á áttundu mínútu og tveimur mínútum síðar bætti fyrirliðinn, […]

Allt er fertugum fært

Á laugardaginn 28. júní verða liðin 40 ár frá því fyrsta tölublað Frétta leit dagsins ljós. �?að var árið 1974 að prentsmiðjan Eyjaprent ákvað að hefja útgáfu á vikulegu fréttablaði í Eyjum sem fékk nafnið Fréttir. Fyrir á blaðamarkaði í Eyjum var blaðið Dagskrá og pólitísku blöðin Brautin, Fylkir, Framsóknarblaðið og Eyjablaðið. Fyrsta blað Frétta […]

Fyrsti fundur bæjarstjórnar verður 3. júlí

Ný bæjarstjórn var eins og kunnugt er kosinn 30. maí síðastliðinn. Fyrsti fundur hennar verður haldinn í Eldheimum á goslokadaginn 3. júlí. �?ar verður kosið í nefndir og ráð bæjarins. Auk þess sem kosinn verður nýr forseti bæjarstjórnarinnar, varamaður hans og skrifari og væntanlega endurnýjaður ráðningarsamningur bæjarstjóra. (meira…)

Fylgið mér

Víða í bænum má nú sjá merki á gangstéttarhellum þar sem vísað er á leiðina að söfnun bæjarins og öðrum merkum stöðum. Er þetta gert til að að auðvelda ferðamönnum að rata um bæinn. Myndin sem hér fylgir er af vegvísinum að Sagnheimum, safnahúsinu við Ráðhúsströð. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.