Skellur í Lengjubikarnum

Fimm leikir fóru fram í A-deild Lengjubikars karla í gær. ÍA, Keflavík, Fylkir og �?róttur unnu sína leiki og Selfoss og Grótta skildu jöfn. Eyjamenn mættu Fylki og fengu stóran skell, fengu á sig fjögur mörk án þess að geta svarað fyrir sig. Albert Brynjar Ingason skoraði tvö mörk og Andrés Már Jóhannesson og Oddur […]

Bjargaði skipsfélögunum með því að klífa Ofanleitishamar í frosti og snjó

-Mánaðardagurinn í dag er alltaf sérstakur. �?ennan dag árið 1928 vann pabbi það einstaka björgunarafrek að klífa Ofanleitishamar og bjarga skipsfélögum sínum. �?ennan dag var mikill snjór og frost í Vestmannaeyjum,þannig að það er enn þann dag í dag mönnum mikil ráðgáta hvernig hann gat klifið hamarinn og sótt hjálp til að bjarga mönnunum,sem biðu […]

Vegur lagður með hafnargarðinum

Búið er að gera veg hafn­ar­meg­in með eystri brim­varn­argarðinum við Land­eyja­höfn. Einnig var byggður út­sýn­ispall­ur við höfn­ina. �?á var flóðvarn­argarður Markarfljóts­meg­in færður nær sjón­um. Í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir �?laf­ur Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri �?jót­anda, að verkið hefði haf­ist í sept­em­ber s.l. og því lokið laust eft­ir síðustu ára­mót. Byrjað var á að grafa upp flóðvarn­argarðinn sem […]

Sagan endurtekur sig

Guðlaugur Sigurðsson var einn stofnenda Frétta á sínum tíma og var ritstjóri blaðsins. Hann skrifar á faceboosíðu sína minningarbrot frá þessum tíma og tengir þær nýafstöðnum Hæstaréttardómi. �??Í tilefni Hæstaréttardóms yfir siðlausum �??banksterurm�??. Mér er minnisstætt þegar ég vann sem blaðamaður og prentari í Eyjum í miklu umróti stuttu eftir gosið. Var róttækur í skoðunum […]

Bara ekki KR

Daninn Rasmus Christiansen sem spilað með ÍBV fyrir nokkrum árum mun spila með KR næsta sumar. Rasmus lék lykilhlutverk í vörn ÍBV á sínum tíma og var af honum mikill missir þegar hann yfirgaf liðið. Vísir.is segir frá því að hann hafi skrifaði undir samning við KR í nóvember en þó með þeim formerkjum að […]

Kvennaleiknum frestað

Leikur ÍBV og Hauka sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn mun verða spilaður þriðjudaginn 17. febrúar. (meira…)

Lundaballið í höndum Helliseyinga

Í fyrra var Lundaballið slegið af. En nú hafa Helliseyingar tekið af skarið, því Lundaballið 2015 verður haldið í Höllinni laugardaginn 26. september n.k. Takið daginn strax frá. Helliseyingar munu hafa veg og vanda að framkvæmdinni og hafa Steingrímssynir (Stængræmssons) ákveðið að fara með stjórnina. Meðalaldur þeirra er tæplega 90 ár og treysta þeir sér […]

Vegna greinarkorns Huldu í Vatnsdal

Vegna greinarkorns Huldu frá Vatnsdal hér á síðunni vill �?lafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar benda á að Neyðaráætlanir eru gerðar af Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Fyrrverandi lögreglustjóri og Almannavarnanefnd hafa ýtt á slíkt sé gert fyrir hina ýmsu vá sem getur steðjað að Vestmannaeyjum. �?ær áætlanir sem til eru, er hægt að skoða á heimasíðu […]

Lykilmenn í landsleikjafríi

Mbl.is skýrir frá því í morgun, að Íslands­meist­ar­ar Stjörn­unn­ar og Eyja­menn gætu hvort um sig misst lyk­ilmann úr sín­um röðum mest­all­an júlí­mánuð vegna Gold Cup, úr­slita­keppni Norður- og Mið-Am­er­íku í knatt­spyrnu karla sem þá fer fram í Banda­ríkj­un­um og Kan­ada. Pablo Punyed, miðjumaður Stjörn­unn­ar, og Jon­ath­an Glenn, fram­herji ÍBV og næst­marka­hæsti leikmaður Pepsi-deild­ar karla 2014, […]

Lítið um fundahöld

Hulda í Vatnsdal horfir gjarnan á hlutina í gagnrýnu ljósi með hag Vestmannaeyja að leiðarljósi. Á facebook síðu sinni skrifar hún um almannavarnarnefnd: Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja hefur ekki haldið fund síðan 11.02.2013. Hættumat fyrir Vestmannaeyjar var gert af Almannavarnarnefnd Ríkislögreglustjóra 2011. �?ar segir, vegna eldgosahættu væri rétt að vinna að viðbragðsáætlun með rýmingaráætlun. Hvar er þessi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.