Viðbótarafsláttur af Manchester United vörum

Við viljum minna á að síðasti dagur rýmingarsölunnar er á mánudaginn. Mikill afsláttur. Í framhaldi af úrslitum í enska deildarbikarnum verður 10% viðbótarafsláttur af Manchester United vörum (fer í 60% afslátt). Fyrstir koma fyrstir fá. Fyllsta trúnaðar er gætt gagnvart þeim sem kaupa þær vörur. �?etta er Van-metið og Gaal-ið tilboð. (meira…)

ÍBV fór illa með Aftureldingu

Kvennalið ÍBV vann í kvöld stórsigur á Aftureldingu 8:0. Staðan í hálfleik var 4:0 en með sigrinum er ÍBV svo gott sem búið að tryggja sér áframhaldandi sæti í úrvalsdeild. ÍBV er nú í 7. sæti með 18 stig en Afturelding er í 9. sæti, fallsæti með 7 stig. 11 stig eru á milli liðanna […]

Fyrrum leikmaður ÍBV fór illa með United

Ein óvæntustu úrslit Deildarbikarkeppninnar í enska fótboltanum litu dagsins ljós í kvöld þegar enska C-deildarliðið fór illa með fyrrum stórlið Manchester United. Liðin áttust við á heimavelli MK Dons og var uppselt eins og gefur að skilja. Lokatölur urðu 4:0 fyrir MK Dons en svo skemmtilega vill til að fyrrum leikmaður ÍBV, George Baldock leikur […]

Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og má þar helst telja nokkur slys sem urðu í umdæminu. Frekar rólegt var í kringum veitingastaði bæjarins um helgina og engin teljandi vandræði sem fylgdi skemmtanahaldinu. Einn ökumaður var stöðvaður af lögreglu vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þess sem […]

Hvað gerir ÍBV á lokasprettinum?

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu tekur á móti Aftureldingu klukkan 18:00 á Hásteinsvelli í dag. Eyjaliðið er í 7. sæti með 15 stig, en Afturelding er í 9. sæti með 7 stig. �?etta er því afar mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Mosfellingar þurfa svo sannarlega á öllum þeim stigum að halda sem mögulegt er að ná […]

Báðir leikirnir í Eyjum

Nú liggur endanlega fyrir að Íslandsmeistarar ÍBV í handbolta munu leika báða leikina gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í fyrstu umferð EHF-keppninnar á heimavelli. Ákveðið var í gær að leikirnir fari fram 13. og 14. september að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegna átakanna milli Ísraela og Palestíunamanna ákvað EHF (Evrópska […]

Dean í ísfötuáskoruninni

�?eir sem fylgjast með þessa dagana hafa vafalaust tekið eftir svokallaðri ísfötuáskorun en þar er skorað á fólk að láta hella yfir sig klakavatni og styrkja félög þeirra sem eru með MND sjúkdóminn. Dean Edwards, knattspyrnukappi í ÍBV og aðstoðarþjálfari liðsins fékk áskorun og skoraðist auðvitað ekki undan. Hann skoraði jafnframt á Sigurð Ragnar Eyjólfsson, […]

Ný og endurbætt verslun hjá Tölvun

Í dag kl. 13:00, mánudaginn 25. ágúst, opnar Tölvun nýja og endurbætta verslun sína að Strandvegi 51. �?essi glæsilega verslun er stútfull af nýjum vörum og frábærum tilboðum á heimilis- og skólatölvum, ásamt ógrynni af fylgihlutum. Og við keyrum á verði eins og það gerist best í höfuðborginni. Kíktu við, sjón er sögu ríkari! Fréttatilkynning […]

Fagurt veður í Eyjum

Veðrið lék við hvern sinn fingur í Eyjum í gær. Sól og blíða og eyjarnar skörtuðu sínu fegursta. �?að kom fiðringur í fæturnar á Halldór Ben sem tók á rás suður á Eyjum með myndavélina við hönd. Hér er afrakstur þeirrar ferðar og undir er leikinn tónlista af plötunni Kveðja með Dúa Ben. (meira…)

KFS mætir Létti í úrslitunum

KFS lauk leik í B-riðli 4. deildar í gær þegar liðið sótti Augnablik heim. Leikurinn hafði enga þýðingu því KFS var öruggt með efsta sæti riðilsins og Vængir Júpíters höfðu tryggt sér annað sætið, á kostnað Augnabliks, sem endaði í þriðja sæti. Tvö efstu liðin komust í úrslitakeppnina. Eyjamenn höfðu ekki tapað leik í riðlakeppninni […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.