Color Decay var mest spilaða lagið á Rás 2

Ekkert lag var spilað oftar árið 2014 á Rás 2 en lagið Color Decay með Júníusi Meyvant. Næst oftast var lagið HossaHossa með Amabadama spilað og í þriðja sæti var Apart með Kiriyama Family. Farið var yfir 100 mest spiluðu lög ársins í Popplandi í gær. Júníus Meyvant er listamannsnafn Unnars Gísla Sigurmundssonar, Eyjamanns. �?etta […]

Bergur Elías færir sig milli staða á Norðurlandi

�??Nýtt ár gengið í garð sem án efa verður spennandi fyrir mig og mína fjölskyldu. Byrjaður í nýrri vinnu sem framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á norðvesturlandi (SSNV) sem án efa verður spennandi, skemmtilegt og vonandi árangursríkt,�?? segir Bergur Elías Ágústsson, Eyjamaður, fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyja og síðar bæjarstjóri í Norðurþingi á Fésbókarsíðu sinni. �??Vissulega er það […]

Listi með 107 nöfnum en einhver vantar

Eins og komið hefur fram í Eyjafréttum var mikið um dýrðir þegar Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Magnús Sveinsson myntust þess í lok síðasta árs að á árinu 2014 voru 40 ár frá því þau tóku við rekstrinum á Bensínsölunni Kletti. Buðu þau tll veislu þar sem konur voru eðlilega í miklum meirihluta. Hér má sjá hópinn […]

�??Við erum hýslar en þið eruð sníklar”

Sú frétt á eyjafrettum sem varð fimmta sæti yfir mestu lesnu fréttirnar á síðasta ári fékk hinsvegar flest �??commentin” frá lesendum. Flestir urðu þar til að tjá sig. Greinin var eftir Inga Frey Vilhjálmsson, fréttastjóra DV og var upphaflega birt þar, en eyjafréttir tóku hana og birtu á sínum vef, enda snerti umfjöllunarefni Inga Freys […]

Mikilvægt að tryggja embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum

Nú um áramótin voru embætti sýslumanns og lögreglustjóra aðskilin. Lára Huld Guðjónsdóttir tók við sem sýslumaður í Vestmannaeyjum og Páley Borgþórsdóttir tók við sem lögreglustjóri. Í gær, nýársdag bauð Páley, sem tók við embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum frá og með 1. janúar 2015 lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra, fulltrúa, ritara og svo helstu samstarfsaðilum lögreglunnar, bæjarfulltrúum, […]

Varðskipið Týr í stórræðum í Miðjarðarhafinu

Kristófer Helgason kokkur á Álsey VE fékk smáfrí frá kokkastörfum þar um borð og réð sig á varðskipið Tý í nokkrar vikur, sem nú er í Miðjarðarhafinu. Hann sendi eftirfarandi kveðju heim til Eyja nú um áramótin. Gleðilegt ár elsku fjölskylda, ættingjar og vinir héðan úr Miðjarðarhafinu í sannkallaðir íslenskri vetrabrælu og það er ekki […]

Ríkharður kveður Húsasmiðjuna

Ríkharður Hrafnkelsson, rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum er hættur störfum og ætlar á samt eiginkonu sinni að flytja á sínar heimaslóðir, Stykkishólm. Á facebooksíðu sinni segir Ríkharður: �??Á morgun (gamlársdag) verður minn síðasti vinnudagur hjá Húsasmiðjunni í Vestmannaeyjum eftir tæplega sex ára starf sem rekstrarstjóri. �?g kveð afar góðan vinnustað og frábært samstarfsfólk, horfi yfir stöðuna […]

Við áramót

Við áramót lítur fólk gjarnan yfir liðið ár, minnist liðinna atburða. Hvernig var árið, hvað ber nýja árið í skauti sér. – Allt hefur sinn tíma, – upphaf og endi. �?g hóf störf á Fréttum sem nú heita Eyjafréttir, árið 1982. �?g hafði lært prentiðin strax og ég kom úr Gagnfræðaskóla, en hætti fljótlega eftir […]

Síðasta sólsetur ársins 2014

Árið 2014 er að kveðja og aldrei það kemur til baka. En sólin heldur áfram að koma upp og setjast og það gerði hún á suð-vestur himni í dag í síðasta sinn á þessu ári. Egill Egilsson tók þessa skemmtilegu mynd af sólinni að setjast. (meira…)

Góð þátttaka í styrktarhlaupinu

Í morgun var árlegt hlaup eða ganga til styrktar Krabbavörn Vestmannaeyjum og hófst það klukkan 11.00. �?átttaka var góð að venju enda gott veður til útivistar. Hægt var að velja um að byrja suður við Stórhöfða eða frá Steinsstöðum og endað var á Vinaminni þar sem boðið er upp á heita súpu og brauð. �?átttökugjald […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.